Mánudagur, 1. febrúar 2010
Loksins, loksins
Ég er alsæl með minn yfirþunga eftir að hafa lesið þessa grein. Kannski eftir allt saman þá komumst við holdanautin í tísku. Það er annars af mér og mínum yfirþunga að frétta að mér leiðist gífurlega að velja mér föt og svo er verst af öllu að þvottavélin mín og þurrkarinn eru þeim ókostum búin að þau minnka fötin mín.
Nú er reyndar komið í ljós að til er skrímsli sem heitir Kaloría og hún læðist utan á mann í tíma og ótíma og því verða fötin of þröng. Nýr sannleikur? Nei
Laugardagur, 1. ágúst 2009
Forspá
Miðillinn sagði 27. en það varð 31.júlí.
Ég er mjög sátt við að nú kom jarðskjálfti.
Ég veit að nú hristir þú hausinn.
Ég er svo sátt við það vegna ungu konunnar sem setti heiður sinn að veði þegar hún sagði til um væntanlegan jarðskjálfta.
Ég er þess fullviss að hún gerði þetta ekki til að auglýsa sjálfa sig heldur til að aðvara okkur vegna yfirvofandi hættu.
Ég vil nota bloggið mitt í dag til að þakka henni fyrir að sýna þann kjark að koma fram og láta okkur vita.
Þakka þér unga kona. Þú sýndir mikinn kjark með því að opinbera hugboð þitt.
Það hefur ekki verið auðvelt fyrir þig og allra síst eftir 27.júlí þegar ekki kom jarðskjálfti. Nú er hann kominn fram.
|
Snarpur jarðskjálfti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Fimmtudagur, 9. júlí 2009
Fuss og svei!
Hvers eiga eldri borgarar þessa lands að gjalda? Hafa greitt allt sitt og staðið í skilum alla tíð.
Fá þeir ekki einu sinni að lifa elliárin sæmilega áhyggjulausir, án fjárhagserfiðleika?
Lífeyrissjóðir að draga saman og greiða ekki út jafn mikið og áður.
Allt að hækka og bætur standa í stað.
Svei attan skítafýla, af hverju eigum við að standa í skilum fyrir einhverja fáa útrásarvíkinga sem tala í milljörðum en ekki þúsundum eins og almúginn sem sífellt þarf að herða sultarólina.
|
77 ára og skuldum vafinn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Fimmtudagur, 9. júlí 2009
Apar eru þetta!
Ég hélt það væri löngu vitað að hóflegt næringarríkt fæði myndi auka lífslíkurnar og bæta lífsgæðin.
Ofalið fólkið vagar um, illa haldið af fótaverkjum og svitakófum. Áreynslan að drepa það og svitalyktin að drepa þá sem í kring eru.
Fyrir fáum árum var óvanalegt að sjá of feit börn og ungmenni en nú er þetta algeng sjón. Við erum stríðalin, étum of mikið af ruslfæði og drekkum allt of mikið af sykruðum gosdrykkjum.
Hefur þú lesið innihaldslýsingar á kókinu eða hunangs cherios-inu?
Hefur þú skoðað sykurmagnið í mjólkurvörunum og spáð í hitaeiningafjöldann í einu vínarbrauði?
Hefur þú áhyggjur af eigin þyngd eða þeirra sem í kring um þig eru?
Ef svo er þá býð ég þig velkomin í hópinn.
Helv.... kílóin hlaðast fljótt utan á mann og það er erfiðara að eignast þau en að losna við þau.
Hvað er svo til ráða?
Ekkert mál, bara borða minna og oftar, hreyfa sig reglulega og .........
Ég veit þetta allt, get alveg sagt öðrum það en fer svo lítið eftir því sjálf.
Það er betra um að tala en í að komast.
|
Hófleg neysla lengir lífið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Mínar hugleiðingar | Breytt s.d. kl. 23:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 10. júní 2009
Adam og Eva
|
Eva Joly íhugar að hætta |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Sunnudagur, 7. júní 2009
Snilldarferð
|
Ríðandi yfir mestu vatnsföllin |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Föstudagur, 22. maí 2009
Óskastund
Ég vildi óska þess að:
- Lífeyrir hækkaði um 10% í stað þess að lækka
- Tryggingastofnun yrði eins og hænan sem verpti gulleggjunum
- Ekkjur og ekklar fengju að njóta þess lífeyris sem makinn hefði átt að fá
- Ellilífeyrisþegar gætu lifað sæmilegu lífi af sínum bótum
- Aldraðir fengju allir stór einstaklingsherbergi á elliheimilum
- Aldraðir þyrftu aldrei að vera í herbergi með einhverjum ókunnum þegar þeir þurfa að flytja á elliheimili
- Gömul hjón gætu alltaf fengið að vera saman í herbergir
- Stefna stjórnvalda yrði sú að byggðar yrðu litlar íbúðir handa öldruðum
- Þeir sem eru á elliheimilum fengju að fara út þegar er gott veður þó svo þeir séu í hjólastólum eða göngugrind
- Fólk gæti hætt að vinna um sextugt og yngra fólkið fengi þá frekar vinnu
Ég vildi líka óska þess að:
- Enginn skattur yrði tekinn af launum undir 150.000
- Barnabætur yrðu stórlega hækkaðar hjá fólki sem hefur undir 150.000 í grunnlaun
- Barnabætur yrðu ekki greiddar fólki sem er með meira en 300.000 í grunnlaun
- Bætur til einstæðra foreldra yrðu stórlega hækkaðar
- Einstæðir foreldrar greiddu mun minna fyrir leikskólapláss
- Ekki þyrfti að greiða fyrir mat grunnskólabarna
Ég vildi óska þess að:
- Ég fengi góða þjónustu þegar kemur að starfslokum hjá mér
- Ég gæti ferðast þegar ég verð hætt að vinna
- Ég fengi litla íbúð á elliheimilinu svo ég gæti boðið fólkinu mínu kaffisopa eða gistingu
- Leigan á íbúðinni yrði ekki meiri en svo að ég gæti vel greitt fyrir hana
- Til væru lyf handa mér á viðráðanlegu verði
- Ég þyrfti ekki að greiða meira fyrir læknishjálp en nú er
- Ég þyrfti ekki að borga fyrir sjúkrahúsdvöl
- Ég gæti safnað í bankabók og ávöxtun væri ásættanleg
- Ég fengi fullan lífeyri eins og búið var að lofa mér
- Ég yrði á lífi þegar kemur að því að fá út úr lífeyrissjóði og frá Tryggingastofnun
Ég vildi óska þess að ég hefði nú hitt á óskastund.
|
Lífeyrir lækkar um mánaðamót |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Mínar hugleiðingar | Breytt s.d. kl. 15:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 19. maí 2009
Óskastund!!!
Ég vildi óska þess að:
-skattur á sykri, gosi, sætindum og kökum yrði hækkaður.
-ávextir og grænmeti lækkuðu í verði.
-sykurlausar mjólkurvörur yrðu ódýrari.
-óunnar kjöt-og fiskvörur yrðu ódýrari.
-tóbak yrði skattlagt meira.
-áfengi yrði hækkað í verði.
-barnabætur hjá láglaunafólki væru mun hærri.
-öll grunnskólabörn fengju ókeypis hollar máltíðir á kostnað ríkisins því ríkið setur lög um að þau séu skólaskyld.
-öll börnin okkar færu södd að sofa hvert einasta kvöld.
-þau ættu öll öruggt heimili.
-allar mínar óskir rættust á þessu ári.
|
Óhófleg kóladrykkja dregur úr vöðvastyrk |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Mínar hugleiðingar | Breytt s.d. kl. 12:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Laugardagur, 9. maí 2009
Kæru les-endur
Ég fékk athugasemd við síðustu færslu og langar að vita hvort fleiri eru þeirrar skoðunar að ég þurfi að breyta þessari síðu til að gera hana læsilegri.
Vona að þið leyfið mér að heyra ef þið hafið skoðun á þessu máli.
Föstudagur, 8. maí 2009
Vonandi brutu sem
|
Búið að opna Holtavörðuheiði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Mínar hugleiðingar | Breytt s.d. kl. 23:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 0
- Frá upphafi: 6266
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 0
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar







